| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20060508 - 20060514, vika 19

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
170 atburðir voru staðsettir í vikunni, þar af 13 sprengingar og líklegar sprengingar. Stærsti skjálfti vikunnar var um 240 km norður af landinu, 2,6 stig. Á mánudag og þriðjudag mældust áfram ísskjálftar í Skeiðarárjökli.
Reykjanesskagi
Fimm skjálftar mældust út á Reykjaneshrygg. Nokkrir smáskjálftar mældust við veginn við Reykjanesið. Önnur virkni var lítil og dreifð.
Suðurland
Á Suðurlandi mældust yfir 40 skjálftar, allir litlir.
Norðurland
Á Tjörnesbrotabeltinu mældust yfir 40 skjálftar, þeir stærstu um 2 stig.
Hálendið
8 skjálftar mældust norðaustan við Bárðarbungu, 1,0 - 2,1 að stærð. Einn skjálfti mældist undir Grímsvötnum, 1,1 stig, og einn á Lokahrygg, 1,3 stig. 10 ísskjálftar mældust fyrstu tvo daga vikunnar í Skeiðarárjökli.
11 skjálftar mældust á svæðinu kringum Öskju og Herðubreið, 0,2 - 2,0 að stærð.
Við Landmannalaugar mældust 7 skjálftar, 0,8 - 1,3 stig.
Mýrdalsjökull
Undir Mýrdalsjökli voru 7 skjálftar staðsettir þessa vikuna, 3 norðaustarlega í öskjunni og 4 við Goðabungu. Stærstir voru 1,7 og 1,8 stig.
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir