| Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
Jarðskjálftar 20060807 - 20060813, vika 32

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér
Sérkort af
Lýsing á skjálftavirkni vikunnar
Í vikunni mældust 119 jarðskjálftar auk sprenginga.
Suðurland
Á fimmta tug skjálfta mældust á Suðurlandi, flestir smáir.
Reykjanesskagi
Lítil og dreifð virkni var á Reykjanesskaga.
Norðurland
Nokkur dreifð virkni var við Norðurland. Stærsti skjálfti vikunnar mældist rétt við Grímsey 8. ágúst, 2,3 stig.
Hálendið
9 skjálftar mældust norðan í Bárðarbungu, 1,4 - 2,0 stig, og einn á Lokahrygg, 1,3 stig.
6 skjálftar mældust vestan við Herðubreiðartögl, 0,8 - 1,5 stig.
Mýrdalsjökull
11 skjálftar mældust í Mýrdalsjökli, 7 vestan við Goðabungu. Þeir voru á stærðarbilinu 0,8 - 2,1.
Bergþóra S. Þorbjarnardóttir