Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20060904 - 20060910, vika 36

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni mældust 149 skjálftar, 8 sprengingar og 8 líklegar sprengingar.

Skjálftar við Djúpuvík á Ströndum

Seinni hluta vikunnar mældist skjálftahrina með upptök við Djúpuvík við Reykjarfjörð á Ströndum.
Skjálftahrinan hófst seint að kvöldi þann 7. september og hefur staðið fram yfir helgina. Frá 7.-10. september mældust 16 skjálftar. Stærsti skjálftinn í hrinunni varð föstudaginn 8. sept. kl. 09:42, 3.4 að stærð. Engin vitneskja er um að skjálftarnir hafi fundist. Þeir fundust ekki á Hótel Djúpavík og ekki á Litlu-Ávík á Ströndum. Þetta eru innflekaskjálftar. Upptök þeirra eru við gamla útbrunna megineldstöð sem nær frá Reykjarfirði og norður í Ófeigsfjörð. Upptök skjálftanna staðsetjast á talsvert miklu dýpi (~15 km) en skekkjumörk eru mikil þar sem næsta jarðskjálftamælistöð (SIL) er í um 70 km fjarlægð (Hraun á Skaga).

Suðurland

Á Hengilssvæðinu mældust fáeinir smáskjálftar við Ölkelduháls.
Á Suðurlandsundirlendinu voru skjálftar með upptök í Ölfusinu, við Hestvatn, í Holtum og í Landssveit. Þeir voru allir minni en 1 að stærð

Reykjanesskagi

Á Reykjanesskaganum mældust fáeinir smáskjálftar með upptök við Eldvörp, við Fagradalsfjall, við Kleifarvatn og við Bláfjöll. Þeir voru allir minni en 1.3 að stærð.

Norðurland

Í byrjun vikunnar mældust 2 innflekaskjálftar með upptök í Vopnafjarðargrunni, um 95 km norðaustur af Vopnafirði. Fyrri skjálftinn varð þann 4.9. kl. 11:49, 2.4 að stærð og sá seinni þann 5.9. kl. 06:57, 2.7 að stærð.

Úti fyrir Norðurlandi mældust skjálftar í Eyjafjarðarál og austan við Grímsey. Stærsti skjálftinn var í Eyjafjarðarál þann 5.9. kl. 06:37, 1.9 að stærð.

Hálendið

Undir Vatnajökli mældust skjálftar við Bárðarbungu, við Lokahrygg, við Kverkfjöll og undir Brúarjökli. Stærsti skjálftinn var við Bárðarbungu þann 8.9. kl. 08:03 með stærð 2.
Þrír ísskjálftar mældust í Skeiðarárjökli þann 8. september.

Á Torfajökulssvæðinu mældust 3 skjálftar dagana 6. og 7 september. Stærstur þeirra var 1.5 að stærð þann 7.9. kl. 17:56.

Einn smáskjálfti var við Herðubreið þann 10.9. kl. 18:31 með stærðina 0.9.

Mýrdalsjökull

Undir Mýrdalsjökli mældust 29 skjálftar. Þeir áttu allir upptök undir vestanverðum jöklinum, Goðabungu. Af þessum 29 skjálftum voru 6 skjálftar stærri en 1.7. Stærsti skjálftinn var þann 8.9. kl. 20:43 með stærð 2.4.

Einn smáskjálfti átti upptök við Steinsholt undir Eyjafjallajökli þann 5. september, kl. 06:02.

Þann 9. september kl. 11:22 varð skjálfti að stærð 1.1 með upptök í Eyjafjalladjúpi, um 23 km suðvestur af Vík í Mýrdal.

Gunnar B. Guðmundsson