Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20061225 - 20061231, vika 52

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Það voru 99 jarðskjálftar staðsettir í viku 52. Um 25% þeirra urðu undir Mýrdalsjökli. Skjálftarnir sem mældust voru frá -0,4 til 2,8 á Richterkvarða. Sá stærsti varð kl. 16:57 þann 31. desember undir vesturhluta Hofsjökuls. Árið 2006 mældust alls 9.485 jarðskjálftar með SIL jarðskjálftamælikerfinu. Til að sjá línurit af jarðskjálftavirkninni í viku 52, smellið hér.

Suðurland

Það mældust 7 jarðskjálftar á Suðurlandi og sá stærsti mældist 1,0 á Richterkvarða. Á Reykjanesskaga urðu 20 skjálftar. Sá stærsti mældist 1,7 á Richtervarða. Á Hengilsvæðinu urðu 2 jarðskjálftar á bilinu -0,4 til -0,3 á Richterkvarða.

Norðurland

Á Norðurlandi varð 21 jarðskjálfti og sá stærsti mældist 2,5 á Richtervarða.

Hálendið

Í viku 52 urðu 3 jarðskjálftar undir Vatnajökli sem mældust á bilinu 1,0 til 1,5 á Richterkvarða.

Undir vesturhluta Hofsjökuls urðu 6 jarðskjálftar sem mældust á bilinu 1,1 til 2,8 á Richterkvarða.

Síðan 1994 hafa mælst 127 jarðskjálftar undir Hofsjökli. Stærsti jarðskjálftinn sem mælst hefur undir Hofsjökli síðan 1994 var 2.9 á Richterkvarða og varð þann 9. janúar 2005.

Mýrdalsjökull

Undir Mýrdalsjökli urðu 25 jarðskjálftar og sá stærsti mældist 2,0 á Richtervarða. Flestir skjálftarnir urðu við Goðabungu, rétt vestur af öskju Kötlu.

Matthew J. Roberts