Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20110214 - 20110220, vika 07

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni voru staðsettir 267 jarðskjálftar. Virknin var dreifð, en þó mest vestan við Kleifarvatn.

Suðurland

Aðfaranótt þriðjudags varð skjálfti, 2.4 að stærð, við suðurbrún Hestfjalls. Um tugur lítilla eftirskjálfta kom í kjölfarið. Tuttugu skjálftar mældust sunnantil í Húsmúla, þar sem Orkuveita Reykjavíkur dælir vatni niður í borholu. Flestir urðu skjálftarnir á rúmlega tíu mínútum upp úr klukkan 14 þann 17. febrúar. Nokkrir litlir skjálftar urðu annarsstaðar á Suðurlandi.

Reykjanesskagi

Rúmlega 50 jarðskjálftar mældust í nágrenni Kleifarvatns, flestir rétt vestan þess. Sá stærsti varð klukkan 11:50 þann 20. febrúar, 2.3 að stærð. Fimm skjálftar mældust á Reykjaneshrygg.

Norðurland

Tveir jarðskjálftar mældust nærri Kröfluvirkjun og 47 skjálftar í Tjörnesbrotabeltinu, þar af 12 um 6.5 km suðaustur af Flatey á Skjálfanda og álíka margir skammt norður af Siglufirði.

Hálendið

Um 30 skjálftar mældust í og við Vatnajökul, flestir nærri Grímsvötnum, Kistufelli og Kverkfjöllum. Stærsti skjálftinn varð við Kistufell, 2.2 að stærð, klukkan 17:08 á föstudag. Mikið var um frostbresti á Möðrudalsöræfum á í byrjun vikunnar. Í vikunni mældust 16 skjálftar nærri Hlaupfelli, norðan Upptyppinga, flestir á um 7 km dýpi. Virkni við Þórisdal hélt áfram, þar mældust tugur skjálfta.

Mýrdalsjökull

Í vestanverðum Mýdalsjökli mældust 14 jarðskjálftar og tveir í sunnanverðri Kötluöskjunni. Einn skjálfti með mjög lágri tíðni mældist við Torfajökul.

Einar Kjartansson