Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20110221 - 20110227, vika 08

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Tæplega 1100 jarðskjálftar mældust í vikunni. Mesta virknin var við Kleifarvatn en þar hófst skjálftaruna á fimmtudagskvöldið 24. febrúar og stóð út vikuna. Stærstu skjálftar vikunnar urðu á sunnudag  við Kleifarvatn, annar var fjögur stig en hinn 4,2. Á öðrum svæðum á landinu var fremur rólegt.

Suðurland

Við Húsmúla á Hengilssvæðinu mældust 124 skjálftar, flestallir á mánudeginum, sem urðu vegna niðurdælingar á vegum  Orkuveitunnar. Nokkrir skjálftar til viðbótar mældust austar á svæðinu.
Rólegt var í Ölfusi og á Suðurlandsundirlendinu.

Reykjanesskagi

Á fimmtudagskvöldið hófst jarðskjálftaruna vestan og sunnan við Kleifarvatn og stóð hún út alla vikuna. Snemma á sunnudagsmorgni (upp úr klukkan 5) fóru  skjálftarnir stækkandi og mældust nokkrir um og yfir þremur stigum. Klukkan 09:06 um morguninn varð síðan skjálfti sem var  fjögur stig og fannst hann víða á höfuðborgarsvæðinu, á Akranesi og í Borgarnesi. Seinni part sunnudagsins virtist heldur  vera að draga úr virkninni en klukkan 17:27 kom skjálfti sem var heldur stærri en sá fyrri, eða 4,2 stig og var hann  staðsettur nokkru sunnar en sá fyrri. Hann fannst á höfuðborgarsvæðinu, í Borgarfirði, Grindavík og austur á Hellu og  Hvolsvelli. Um klukkan 21:30 á sunnudagskvöldið fór heldur að draga úr virkninni. Alls voru staðsettir um 840 skjálftar við Kleifarvatn í vikunni, flestir á sunnudeginum.
Upptök skjálfta við Krýsuvík á árinu 2011. Svartir hringir tákna skjálfta fram til 26. febrúar en rauðir þann 27. febrúar. Á þessari mynd má m. a. sjá uppsafnaðan fjölda skjálfta sem hefur orðið við Krýsuvík frá árinu 2004.

Norðurland

Fremur rólegt var í Tjörnesbrotabeltinu þessa vikuna en rétt rúmlega 30 skjálftar mældust þar, sá stærsti 2,5 stig. 
Nokkrir smáskjálftar mældust við Kröflu og Þeistareyki.

Hálendið

Í Vatnajökli mældust rúmlega tveir tugir skjálfta. Við Grímsvötn urðu sex skjálftar, sá stærsti 3,6 stig. Þessi skjálfti var stærstur í jöklinum í þessari viku. Fjórir skjálftar mældust undir  Kverkfjöllum, sá stærsti tæplega tvö stig. Undir Lokahrygg mældust fimm skjálftar, þrír undir Bárðarbungu og sami fjöldi  við Kistufell. Allir þeir skjáfltar voru um og innan við tvö stig.
Á svæðinu norðan Vatnajökuls mældust 15 smáskjálftar, þar af sex við Öskju.
Í Geitlandsjökli í sunnanverðum Langjökli mældust þrír skjálftar, sá stærsti losaði tvö stig. Á fimmtudagskvöld varð  skjálfti vestan Hofsjökuls sem var rúm þrjú stig.

Mýrdalsjökull

Tólf skjálftar mældust í vikunni, helmingurinn innan öskjunnar og helmingurinn í vesturjöklinum. Stærsti skjálftinn var  tvö stig og var hann innan öskjunnar. Sjö smjáskjálftar urðu undir toppgíg Eyjafjallajökuls. 

Sigþrúður Ármannsdóttir