Í vikunni voru staðsettir 355 jarðskjálftar. Flestir skjálftanna voru
við Húsmúla (Hellisheiðarvirkjun) og í Kötlu.
Suðurland
Um 170 skjálftar mældust á niðurdælingasvæði Orkuveitu Reykjavíkur við Húsmúla.
Auk þess mældist um tugur skjálfta við jaðar Svínahrauns, um 3 km austan við Litlu Kaffistofuna.
Stærsti skjálftinn var 2,2 að stærð, klukkan 02:20 á miðvikudagsmorgun. Flestir urðu þann dag. Undir
lok vikunnar hafði mikið dregið úr virkni á svæðinu.
Reykjanesskagi
Fjórir skjálftar voru staðsettir út af Reykjanesi. Við Kleyfarvatn mældust 12 skjálftar.
Norðurland
Fyrir norðurlandi mældust 35 skjálftar, sá stærsti M1,8 varð um 25 km vestur af
Kópaskeri klukkan 16:44 á miðvikudag.
Hálendið
Lítil virkni var í Vatnajökli, fjórir skjálftar mældust norðan Bárðarbungu og tveir
í Kverkfjöllum.
Tveir skjálftar urðu í norðantil í Dyngjufjöllum ytri. Einn skjálfti mældist við Hlaupfell norðan Upptyppinga og
þrír í nágrenni við Herðubreið.
Einn jarðskjálfti mældist við Hveravelli og einn í miðjum Langjökli.
Mýrdalsjökull
Virkni undir Mýrdalsjökli er stöðug.
Í Kötluöskjunni mældust rúmlega 60 skjálftar, 5 við Hafursárjökul og 14 undir Goðalandsjökli.
Stærsti skjáfltinn varð fimmtudaginn 27 október klukkan 17:52. Stærðin var 3,3.