Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20120402 - 20120408, vika 14

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Alls voru staðettir 216 jarðskálftar í vikunni. Í byrjun vikunnar var skjálftahrina við vestanvert Kleyfarvatn en á skírdag hófst hrina norðaustan við Tungnafellsjökul, undir vikulokin var nokkur virkni við norður jaðar Vatnajökuls við Kistufell og Kverkfjöll og á Lokahrygg austur af Hamrinum.
Nokkir jarðskjálftar mældust á meira en 15 km dýpi, meðal annars undir og suður af Mýrdalsjökli og sunnan Tungnafellsjökuls.

Suðurland

Þrír skjálftar mældust nærri Nesjavöllum, sá stærsti M2,2 Nokkrir jarðskja¿ftar mældust sunnan Þjórsár skammt frá Árnesi. Fjórir litlir skjálftar mældust við niðurdælingar svæði Orkuveitu Reykjavíkur við Húsmúla. Litlir skjálftar mældust víða á Suðurlands skjálftabeltinu.

Reykjanesskagi

Hrina hófst á mánudag undir vestanverðu Kleyfarvatni og á fimmtudag mældust þrír skjálftar undir Núpshlíðarhálsi, tveir þeirra voru um 2,5 að stærð. Alls mældust um 20 skjálftar á Reykjanesskaganum.

Norðurland

Tveir jarðskjálftar mældust um 9 km vestur af Ásbyrgi og 4 við Kröfluvirkjun. Fyrir norðan Land mældust 32 jarðskjálftar, flestir frá Öxarfirði og norður fyrir Grímsey.

Hálendið

Aðfaranótt fimmtudags hófst hrina jarðskjálfta norðaustan Tungnafellsjökuls, við norðurenda Vonarskarðs. Alls voru staðsettir 33 skjálftar þar. Við Kistufell, norðan Bárðarbungu mældust 11 jarskjálftar, sex í Kverkfjöllum, fjórir á Lokahrygg, austan við Hamarinn og einn undir Grímsvötnum.

Tveir djúpir jarðskjálftar mældust vestan Vatnajökuls. Við Hlaupfell norðan Uptyppinga mældust átta jarðskjálftar, sjö undir norðurenda Herðubreiðargagla og fjórir vestan Herðubreiðar. Tveir jarðskjálftar mældust á óvenjulegum stað, norður af Blöndulóni, en kröftug jarðskjálftahrina varð undir sunnanverðu Blöndulóni haustið 2010.

Mýrdalsjökull

Undir og í næsta nægrenni Mýrdalsjökuls mældust 22 jarðskjálftar, þar af sjö undir Goðalandsjökli. Sjö skjálftar mældust við Hafursárjökul. Klukkan 8:18 á þriðjudagsmorgun mældist djúpur (24 km) jarðskjálfti undir Kötlu Einnnig mældist djúpur jarðskjálfti undir Mýrdalnum. Tveir skjálftar mældust tæpa þrjá km vestur af Landmannalaugum og fjórir sunnar á Torfajökulssvæðinu.

Einar Kjartansson