Veðurstofa Íslands
Eftirlits- og spásvið

Jarðskjálftar í desember 2013

[Fyrri mán.] [Næsti mán.] [Aðrir mánuðir og vikur] [Jarðvárvöktun]

Upptök jarðskjálfta á Íslandi í desember 2013. Rauðir hringir tákna jarðskjálfta stærri en 0 að stærð.
Á kortinu eru einnig sýnd eldstöðvakerfi (Páll Einarsson og Kristján Sæmundsson, 1987).

Jarðskjálftar á Íslandi í desember 2013

Rúmlega 800 jarðskjálftar mældust á landinu í desember. Skjálftahrinur urðu austan við Fagradalsfjall, við Húsmúla á Hellisheiði og við Þórisjökul. Stærsti skjálftinn var í Kverkfjöllum, 3,1 að stærð.

Reykjanesskagi
Tiltölulega rólegt (um 70 skjálftar) var á Reykjanesskaga miðað við mánuðinn á undan. Skömmu fyrir hádegi á gamlársdag hófst skjálftahrina austan við Fagradalsfjall. Um miðnætti höfðu rúmlega 20 skjálftar mælst og hélt virknin áfram á nýju ári. Stærstu skjálftarnir vorum um tvö stig. Tæplega 30 skjálftar mældust á Krýsuvíkursvæðinu, stærsti um 2,5. Við Vífilsfell mældist um tugur skjálfta og eru það talsverð umskipti miðað við mánuðinn á undan þegar hátt í 400 skjálftar mældust þar í tveimur hrinum. Flestir skjálftarnir á þessu svæði urðu í jólavikunni, stærsti um 2,5. Rólegt var á Reykjaneshrygg.

Suðurland
Hátt í 90 skjálftar mældust við Húsmúla á Hellisheiði. Fyrri hluta mánaðarins var rólegt á svæðinu en upp úr klukkan 11 þann 14. desember hófst þar skjálftahrina sem stóð fram eftir degi. Um helmingur skjálftanna mældist í þeirri hrinu, aðrir síðar í mánuðinum. Stærstu skjálftarnir voru um 1,5. Um tugur smáskjálfta mældist austar á Hengilssvæðinu og tæplega 30 í Ölfusi. Á fimmta tug skjálfta, stærsti rúm tvö stig, mældust á Suðurlandsundirlendinu, flestir á sprungunum við Hestfjall og í Holtum frá 2000 og við Selsund frá 1912. Einn grunnur skjálfti, 0,7 að stærð, mældist undir toppgíg Heklu þann 10. desember. Annar litlu stærri varð 7. desember um það bil miðja vegu milli Surtseyjar og Heimaeyjar.

Norðurland
Á Norðulandi mældust um 200 jarðskjálftar. Mest virkni var í Öxarfirði þar sem mældust rúmlega 70 skjálftar. Stærsti jarðskjálftinn var af stærðnni 2,4 kl. 12:32 þann 20. desember með upptök um 33 km NNA af Siglufirði. Virknin var að með hefðbundnu sniði og dreyfðist á Húsavíkur-Flateyjarmisgengið þar sem mest virkni var á vestur hluta misgengisins en einnig norð-vestan við það í Eyjafjarðarál. Megin virknin á Grímseyjarbeltinu var í Öxarfirði. Einnig var virkni rétt norðaustan við Flatey í Skjálfanda.

Mýrdalsjökull
Undir Mýrdalsjökli mældust rúmlega 90 jarðskjálftar. Stærsti skjálftinn var um 2 að stærð og átti upptök undir vestanverðum jöklinum en þar mældust á þriðja tug skjálfta. Í Kötluöskjunni voru 32 jarðskjálftar og var stærsti skjálftinn 1,1 að stærð. Við Hafursárjökul sunnan við öskjuna mældust 30 jarðskjálftar. Þeir voru allir minni en 1 að stærð og urðu næstum daglega allan mánuðinn. Fjórir skjálftar áttu upptök við Sandfellsjökul, sá stærsti 1 að stærð. Tveir grunnir skjálftar voru við toppgíg Eyjafjallajökuls og var sá stærri 0,5 að stærð.

Hálendi
Á Torfajökulssvæðinu mældust 17 skjálftar. Stærsti skjálftinn mældist 2.1 að stærð þann 22. desember en þá mældust flestir skjálftar á svæðinu. Við Langjökul voru 13 skjálftar. Þar af áttu 11 þeirra upptök í skjálftahrinu við Þórisjökul dagana 10. og 11. desember og mældist stærsti skjálftinn 1,9. Þann 21. desember mældust 2 skjálftar með upptök um 5-7 kilómetra norðvestur af Hvervöllum. Sá stærri var 2 að stærð. Tveir skjálftar,báðir um 1,5 að stærð voru undir norðausturhluta Hofsjökuls þann 11. desember.

Undir Vatnajökli mældust 114 jarðskjálftar - við Bárðarbungu (45), í Kverkfjöllum (27), austur af Hamrinum (12) og við Esjufjöll (sjö). Alls mældust 14 jarðskjálftar af stærð um eða yfir 1,5. Stærsti skjálftinn var 3,1 að stærð þann 19. desember kl. 09:30 og átti hann upptök í Kverkfjöllum í norðanverðum Vatnajökli. Jarðskjálftarvirknin í Kverkjöllum var á 1 til 11 kílómetra dýpi.

Við Öskju og Herðubreið voru yfir 100 jarðskjálftar. Jarðskjálftarnir þar voru á stærðarbilinu -1,2 til 2,3. Flestir þeirra, um 50 voru við Herðubreið og um 24 voru austur af Öskju. Við Öskju var meðaldýpi skjálftanna 4,1 kílómetri en við Herðubreið tæplega 7,6 kílómetrar.

Eftirlitsfólk í desember: Bergþóra S. Þorbjarnardóttir, Sigþrúður Ármannsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Matthew J. Roberts, Benedikt G. Ófeigsson og Einar Kjartansson.