Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
---|
[Skjálftalisti] | [Fyrri vika] | [Næsta vika] | [Aðrar vikur] | [Jarðeðlissvið] |
[Suðurlandi] | [Reykjanesi] | [Hengilssvæðinu] | [Bárðarbungu] | [Lang-og Hofsjökli] | [Öskju] | [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] | [Norðurlandi] |
Rúmlega 250 jarðskjálftar mældust í vikunni. Engar stórar jarðskjálftahrinur
urðu. Nokkur virkni var við Húsmúla á Hellisheiði og smáhrina varð á
Bláfjallasvæðinu. Stærsti skjálfti vikunnar var 3,0 undir Lokahrygg í
Vatnajökli.
Rúmlega 50 skjálftar mældust á niðurdælingarsvæði Orkuveitunnar við Húsmúla á
Hellisheiði. Var sú virkni viðvarandi alla vikuna en um helmingur skjálftanna
varð á miðvikudagsmorgninum 30. október, á tímabilinu frá 08:30 og fram undir
hádegi. Stærstu skjálftarnir voru rúmt stig. Nokkrir skjálftar voru staðsettir
norðan Hveragerðis, í Þrengslum og á þekktum sprungum á Suðurlandsundirlendi.
Milli 10 og 20 skjálftar mældust á Reykjanesskaga frá Kleifarvatni og vestur
úr, stærsti 1,4. Á öðrum tímanum aðfaranótt 31. október hófst skjálftahrina á
Bláfjallasvæðinu og stóð hún til morguns. Tuttugu skjálftar mældust, flestir
innan við eitt stig en sá stærsti tæp tvö stig. Talsverð skjálftavirkni var á
svipuðum slóðum í fyrra, og skjálfti sem var 4,6 að stærð mældist í ágústlok
2012. Skjálftarnir núna voru lítið eitt austan við svæðið sem var virkast í
fyrra. Nokkrir skjálftar mældust nálægt Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg, allir
um og innan við tvö stig.
Tiltölulega rólegt var í Tjörnesbrotabeltinu, úti fyrir Norðurlandi, um 50
skjálftar á öllu svæðinu. Mesta virknin var í Öxarfirði, um 30, og um tugur á
Húsavíkur-Flateyjarmisgenginu. Tveir skjálftar náðu stærðinni tveimur og voru
þeir báðir úti fyrir mynni Eyjafjarðar. Lítil virkni var á svæðunum við Kröflu
og Þeistareyki. Þrír skjálftar mældust á Kolbeinseyjrhrygg, stærsti 2,5.
Rólegt var í Vatnajökli líkt og undanfarnar vikur, rúmlega tugur skjálfta. Um
helmingur skjálftanna var á Lokahrygg og þar var einnig stærsti skjálftinn í
jöklinum og reyndar á landinu öllu. Hann varð klukkan 12:08 þann 28. október og
var 3,0. Nokkrir skjálftar voru undir Kverkfjöllum, aðrir dreifðust um vestan-
og sunnanverðan jökulinn. Á svæðinu norðan Vatnajökuls mældust 15 skjálftar, um
helmingurinn austur af Öskju en aðrir við Herðubreið og Herðubreiðartögl, allir
um og innan við eitt stig. Stakur skjálfti, 0,9 að stærð, varð undir Fjallöldu,
norður af Dyngjufjöllum ytri.
Lítil virkni var í vestara gosbeltinu. Tveir smáskjálftar mældust sunnan
Langjökuls, annar austan við Skjaldbreið og hinn norðan við Sandfell.
Undir vestanverðum Mýrdalsjökli mældust 15 skjálftar, stærstu rúmt stig. Litlu færri urðu innan Kötluöskjunnar, stærsti 1,8 og nokkrir við Hafursárjökul. Stakur smáskjálfti varð upp af Gígjökli í Eyjafjallajökli. Rólegt var á Torfajökulssvæðinu.