Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið

Jarðskjálftar 20060515 - 20060521, vika 20

[Skjálftalisti] [Fyrri vika] [Næsta vika] [Aðrar vikur] [Jarðeðlissvið]

PostScript-skrá
Forrit sem les PostScript-skrár má nálgast hér

Sérkort af

[Suðurlandi] [Reykjanesi] [Hengilssvæðinu] [Bárðarbungu] [Lang-og Hofsjökli] [Öskju] [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] [Norðurlandi]

Lýsing á skjálftavirkni vikunnar

Í vikunni voru staðsettir 169 skjálftar á landinu og umhverfis það, auk nokkurra sprenginga. Stærsti skjálftinn var 2,4 stig skammt norðan við Grímsey.

Suðurland

Nokkuð var af smáskjálftum á Hengilssvæðinu og Suðurlandsundirlendinu, en stærstu skjálftarnir þar voru 1,2 stig.

Reykjanesskagi

Í Fagradalsfjalli mældust nokkrir skjálftar, sem urðu flestir á sama hálftímanum, sá stærsti var 1,3 stig. Vestan við Reykjanes komu nokkrir skjálftar, sá stærsti 1,4 stig. Nokkrir smáskjálftar mældust við Kleifarvatn.

Norðurland

Nokkuð var um skjálfta á Tjörnesbrotabeltinu, en stærstu skjálftar vikunnar voru þar, 2,4 og 2,3 stig. Í Öxarfirði varð hrina þar sem yfir 20 skjálftar komu á sama stað, sá stærsti 1,6 stig.

Hálendið

Í Vatnajökli urðu skjálftar bæði við Bárðarbungu og Kistufell, sá stærsti var 1,9 stig. Í Herðubreiðartöglum kom skjálfti að stærð 1,5 stig og nokkrir minni. Þá varð skjálfti í Geitlandsjökli 1,5 stig.

Mýrdalsjökull

Í Mýrdalsjökli voru staðsettir 10 skjálftar, sá stærsti 1,6 stig í vesturjöklinum, og á Torfajökulssvæðinu voru tveir smáskjálftar.

Þórunn Skaftadóttir