Veðurstofa Íslands
Jarðeðlissvið |
---|
[Skjálftalisti] | [Fyrri vika] | [Næsta vika] | [Aðrar vikur] | [Jarðeðlissvið] |
[Suðurlandi] | [Reykjanesi] | [Hengilssvæðinu] | [Bárðarbungu] | [Lang-og Hofsjökli] | [Öskju] | [Mýrdals- og Eyjafjallajökli] | [Norðurlandi] |
Við Húsmúla á Hellisheiði mældust tæplega 200 skjálftar vegna niðurrennslis affallsvatns í borholur Hellisheiðarvikjunar. Mesta virknin var á laugar- og sunnudag og varð stærsti skjálftinn, rúmlega þrjú stig, á laugardagskvöldið klukkan 22:36.
Tilkynning barst frá Selfossi um að hann hefði fundist þar. Að mestu leyti var um smáskjálftavirkni að ræða, nokkir voru þó tvö stig og rúmlega það.
Hér má sjá mynd með afstæðum staðsetningum
frá því í byrjun september 2011 og fram til 22. apríl í ár. Stjörnurnar
sýna upptök skjálftanna (M4) frá morgni 15. október. Um tugur smáskjálfta mældist austast í Suðurlandsbrotabeltinu og nokkrir annars staðar á Suðurlandsundirlendinu.
Rólegt var á Reykjanesskaga og -Reykjaneshrygg.
Tæplega 50 skjálftar mældust á og úti fyrir Norðurlandi, dreifðir í tíma og rúmi. Enginn náði þremur stigum.
Tæplega 20 skjálftar mældust í Vatnajökli, um helmingur við Kistufell. Stærsti skjálftinn var rúm tvö stig við Hamarinn. Allt var með kyrrum kjörum á Grímsvatnasvæðinu. Rólegt var á svæðinu norðan Vatnajökuls og einn smáskjálfti mældist í Öskju. Einn skjálfti mældist í Hofsjökli og annar í
Þórsidal við Langjökul, báðir rúmlega eitt stig.
Rólegt var í Mýrdalsjökli en þar mældust um 20 skjálftar, þar af helmingur innan öskjunnar. Stærsti skjálftinn var 1,5 að stærð og var hann í vestanverði öskjunni, nálægt katli 4. Þrír smáskjálftar mældust á Torfajökulssvæðinu og einn við Surtsey.
Evgenia Ilyinskaya, Sigþrúður Ármannsdóttir og Matthew J. Roberts